Vill ræða úttekt á lífeyrissjóðum

Lilja Mósesdóttir, þingmaður, sem situr í efnahags- og viðskiptanefnd, hefur óskað þess að nefndin sem tók út starfsemi lífeyrissjóðanna komi á fund efnahags- og viðskiptanefndar til að greina frá niðurstöðum úttektar á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagaumhverfi lífeyrissjóðanna.
Lilja nefnir sérstaklega tvennt úr úttektinni sem efnahags og viðskiptanefnd þurfi að bregðast við. Hið fyrra er ábending um breytingar á hámarki fjárfestinga í hlutabréfum úr 35% af hreinni eign í 60%. Breytingar á lífeyrislögum beri með sér að Alþingi hafi fram að falli bankanna brugðist við óskum hagsmunaaðila innan og utan stjórna lífeyrissjóða sem vildu rýmka fjárfestingarmöguleika. Hið seinna eru lagabreytingar sem heimila sjóðunum að fjárfesta í íbúðarhúsnæði og reka það til dæmis með útleigu. Úttektarnefndinni sýnist þessi breyting vera í andstöðu við lífeyrissjóðalögin og varasamt sé að þau fari í slíkan rekstur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Hrunskýrsla lífeyrissjóðanna
Tapið 2 milljónir á mann
Stjórnir lífeyrissjóðanna meðvirkar






