Þota rýmd á Kastrupflugvelli

Farþegaþota frá SAS á flugi. Mynd: Shutterstock

Engan sakaði þegar farþegaþota var rýmd í skyndingu á Kastrupflugvelli í morgun. Reyk tók að leggja frá öðrum hreyfli þotunnar, sem verið var að búa til brottfarar.

Vissast þótti að flytja 135 farþega frá borði. Meðal þeirra voru Hákon, krónprins í Noregi, og Mette-Marit krónprinsessa, eiginkona hans. Þau voru á heimleið eftir að hafa verið í fertugsafmæli Mary, krónprinsessu Dana, í gær.

Mette-Marit er ákaflega flughrædd. Hún sendi skilaboð á Twitter samskiptavefnum, þar sem hún sagði að morgunninn hefði verið viðburðaríkari en búist var við. Jafnframt þakkaði hún starfsfólki SAS fyrir að hafa brugðist við hratt og örugglega.

Ekki er vitað hvað olli því að reyk tók að leggja frá þotuhreyflinum. Talsmaður SAS segir í viðtali við danska ríkisútvarpið að í tilvikum sem þessu sé fyllsta öryggis ávallt gætt. Allt hafi gengið að óskum og beðið væri eftir annarri þotu til að flytja farþegana til Óslóar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Evrópa, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku