Reykjavíkurúrvalið hafði betur

Flokkar: Golf, Íþróttir
Reykjavíkurúrvalið vann öruggan sigur í báðum flokkum á mótinu í ár


  • Prenta
  • Senda frétt

Reykjavíkurúrvalið vann bæði í flokki yngri og eldri kylfinga í liðakeppni í golfi á milli Reykjavíkurúrvals og landsbyggðarúrvals sem lauk á Leirdalsvelli í dag en fyrirkomulag keppninnar er sótt til eins frægasta golfmóts allra tíma, Ryder-bikarsins.

Yngri kylfingar Reykjavíkurúrvalsins unnu 8 leiki af 12 í þriðju og síðustu umferðinni í dag og fengu samtals 17 vinninga gegn 7 vinningum landsbyggðarinnar á mótinu.

Eldri kylfingar Reykjavíkurúrvalsins unnu alla 12 leiki þriðju umferðarinnar og hlutu samanlagt 22 vinninga gegn 2 vinningum landsbyggðarinnar.

Reykjavíkurúrvalið er því sigurvegari á mótinu annað árið í röð.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku