Ökumenn í vímu ollu tjóni í nótt

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt laust eftir klukkan hálf sex í morgun að bifreið hefði verið ekið á ljósastaur við Miklubraut í Reykjavík.

Vegfarandi sá bifreiðina fara af staðnum og fylgdi henni eftir, að því er kemur fram í frétt frá lögreglunni. Hann vísaði laganna vörðum á bifreiðina þar sem henni hafði verið lagt í Hólmavaði. Þar sat ölvaður karlmaður undir stýri. Hann var tekinn höndum, færður á næstu lögreglustöð  og vistaður í fangageymslu eftir yfirheyrslu.

Um tveimur klukkustundum síðar var lögreglunni tilkynnt að bifreið hefði verið ekið á aðra á Arnarhrauni í Hafnarfirði. Hún kastaðist síðan á þá þriðju. Ökumaðurinn sem olli tjóninu stakk af, en sjónarvottur gat lýst bifreið hans. Hún var stöðvuð á Flókagötu í Reykjavík. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Bifreið hans var skemmd og flutt á brott með kranabíl. Ökumaðurinn fékk gistingu í fangageymslu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku