Miami Vice-stjarna til Baltasars

Flokkar: Innlent, Mannlíf


  • Prenta
  • Senda frétt

Einn þekktasti sjónvarpsleikari níunda áratugarins, Edward James Olmos, hefur samþykkt að leika skúrkinn í nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, 2 Guns.

 Frá þessu er greint á nokkrum kvikmyndavefmiðlum. Olmos er hvað frægastur fyrir að hafa leikið yfirmann þeirra James Crockett og Ricardo Tubbs í Miami Vice-þáttunum vinsælu en með aðalhlutverkin í 2 Guns fara þeir Mark Wahlberg og Denzel Washington.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku