Mark Úkraínu ekki dæmt gilt
Fyrst birt: 19.06.2012 21:27, Síðast uppfært: 20.06.2012 09:08

Marko Dević vonsvikinn yfir því að markið hans var ekki dæmt gilt.
Marko Dević leikmaður Úkraínu skoraði mark sem ekki var dæmt gilt í leiknum gegn Englandi í lokaumferð D-riðils á Evrópumótinu í knattspyrnu.
Endursýning leiddi í ljós að boltinn fór allur yfir línuna þegar John Terry hreinsaði í burtu. Hins vegar sést einnig í endursýningu að Artem Milevskiy sem gaf boltann á Dević, var rangstæður þegar hann fékk sendinguna inn fyrir vörn Englendinga. Aðstoðardómarinn dæmdi þó ekki rangstöðu. Hægt er að sjá atvikið með því að smella á myndina að ofan.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







