Johnny Depp skilinn
Fyrst birt: 19.06.2012 19:34, Síðast uppfært: 19.06.2012 19:34

Johnny Depp og eiginkona hans, franska leikkonan Vanessa Paradis, eru skilinn. Þetta staðfesti fjölmiðlafulltrúi leikarans í samtali við sjónvarpsþáttinn Entertainment Tonight. Skilnaðurinn hefur legið lengi í loftinu en hjónabandið stóð í fjórtán ár.
Depp er einn vinsælasti kvikmyndaleikari heims um þessar mundir en hjónaband hans og Paradis var af mörgum talið eitt það traustasta í Hollywood. Í máli fjölmiðlafulltrúans kom fram sú ósk að fjölmiðlar virtu einkalíf hjónanna og barnanna á þessari erfiðu stundu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














