Hóta frekara útflutningsbanni

Mynd úr safni.
Stjórnvöld í Íran hóta að hætta að flytja út olíu til fleiri Evrópuríkja en Frakklands og Bretlands ef fjandsamlegar aðgerðir gegn Írönum halda áfram.
Ahmad Qalebani, aðstoðar- olíumálaráðherra, segir að til greina komi að slíta viðskiptum við Spánverja, Grikki, Ítali, Portúgala, Þjóðverja og Hollendinga. Íranar flytja um 20% af hráolíunni sem þeir framleiða til Evrópuríkja, einkum Ítalíu, Grikklands og Spánar.
Íranar tilkynntu í gær að þeir hefðu ákveðið að hætta að flytja olíu til Bretlands og Frakklands, væntanlega til að svara þeirri ákvörðun Evrópusambandsins að hætta að flytja inn olíu frá Íran frá 1. júlí næstkomandi. Með viðskiptabanninu er Írönum refsað fyrir kjarnorkuáætlun sína, sem vesturveldin telja að miði að því að Íranar hyggist hefja smíði kjarnorkuvopna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Vara Ísraelsmenn við árás á Íran
Hætta að selja andstæðingum olíu






