Fordæmir ákvörðun Rússa og Kínverja
Fyrst birt: 05.02.2012 08:57, Síðast uppfært: 05.02.2012 09:57

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti. Mynd: AFP
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti fordæmir þá ákvörðun Rússa og Kínverja að greiða atkvæði gegn ályktunartillögu um átökin í Sýrlandi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær.
Í yfirlýsingu sem forsetaskrifstofan í París sendi frá sér í dag segir að ófriðnum í Sýrlandi verði að linna og ályktun Öryggisráðsins hefði verið liður í að koma stjórnvöldum í landinu frá völdum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku








