Árás á lögreglustöð í Afganistan
Fyrst birt: 05.02.2012 10:49, Síðast uppfært: 05.02.2012 10:53

Sprengjuárásir eru tíðar í Kandahar í Afganistan. Mynd: Nordic Photos/AFP
Sex afganskir lögreglumenn létu lífið þegar bílsprengja sprakk í dag við höfuðstöðvar lögreglunnar í Kandahar í suðurhluta Afganistans.
Nítján særðust í sprengingunni, sex lögreglumenn og þrettán almennir borgarar. Bifreið með sprengjunni hafði verið lagt á bílastæði lögreglustöðvarinnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








