Alfreð og Birkir með góða innkomu

Alfreð Finnbogason lagði upp annað mark Lokeren í gær

Alfreð Finnbogason og Birkir Bjarnason áttu góða innkomu í lið sín í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld en báðir komu inná sem varamenn.

Alfreð kom inná í lið Lokeren þegar um hálftími lifði leiks og lagði upp annað mark liðsins sem tryggði sér 3-1 sigur á Mons. Þetta var fyrsti leikur Alfreðs með Lokeren á þessu ári sem með sigrinum komst í níunda sæti deildarinnar.

Birkir kom inná í lið Standard Liege þegar tuttugu mínútur voru eftir af leik liðsins gegn Lierse. Hann fiskaði víti rúmum tíu mínútum síðar og endaði leikurinn með 2-0 sigri Standard Liege sem er nú í öðru sæti deildarinnar. Birkir hefur komið inná sem varamaður í síðustu fjórum leikjum liðsins en hefur enn ekki fengið tækifæri í byrjunarliðinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku